Glamour

Beyoncé og Solange fyrstu systurnar til þess að toppa Billboard listann

Ritstjórn skrifar
Tónsmíði er greinilega í ættinni hjá systrunum.
Tónsmíði er greinilega í ættinni hjá systrunum. Mynd/Getty
Nýjasta plata Solange Knowles hefur landað efsta sætinu á Billboard listanum. Platan, sem heitir A Seat At The Table, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda en hún fjallar mikið um ójafnrétti svartra kvenna. 

Hún fylgir í fótspor stóru systur sinnar, Beyoncé, en sú hefur átt sex plötur sem hafa lent í efsta sætinu á Billboard listanum. 

Þetta gerir þær fyrstu systurnar sem ná báðar þessum áfanga. Áður hafa systkyni og bræður náð að afreka þetta. Micheal Jackson og Janet Jackson áttu bæði plötu í fyrsta sæti sem og Master P og Silkk the Shocker.






×