Glamour

Beyonce klæddist 9 milljón dollara virði af demöntum

Ritstjórn skrifar
Ásamt því að vera í glitrandi jakkafötum klæddist hún skartgripum sem eru 9 milljón dollara virði.
Ásamt því að vera í glitrandi jakkafötum klæddist hún skartgripum sem eru 9 milljón dollara virði. Mynd/Getty
Beyonce mætti á CFDA verðlaunahátíðina á mánudagskvöldið klædd í glitrandi Gienchy jakkaföt og með skartgripi frá Lorraine Schwartz, sem er kannski ekkert til þess að kippa sér upp við nema skartgripirnir sem hún klæddist eru að andvirði 9 milljónir dollara.

Hún var með 100 karata demantshálsmen sem er metið á 7 milljónir dollara, 25 karata demantseyrnalokka og fjóra demantshringi. Það var þó tilefni til þess að klæða sig upp í svo fínum klæðum en hún tók á móti verðlaununum "Fashion Icon". 










×