Lífið

Beyoncé hættir við að koma fram á Coachella samkvæmt læknisráði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Beyoncé er gert að hvíla sig meira.
Beyoncé er gert að hvíla sig meira. Mynd/Getty
Hin geysivinsæla söngkona, Beyoncé Knowles, mun ekki koma fram á Coachella tónlistarhátíðinni í apríl næstkomandi, eftir að læknar hennar ráðlögðu henni að sleppa því. Guardian greinir frá.

Söngkonan átti að vera eitt af stærstu atriðum tónlistarhátíðarinnar ásamt Radiohead og Kendrick Lamar en læknateymi hennar ráðlagði henni að minnka við sig, þar sem mikið álag hefur verið á söngkonunni að undanförnu, sem eins og frægt er orðið ber tvíbura undir belti.

Aðdáendur hennar geta þó glaðst yfir því að söngkonan hefur þegar verið bókuð á tónlistarhátíðina árið 2018, þess í stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×