Glamour

Bella Hadid mun ganga í Victoria's Secret tískusýningunni

Ritstjórn skrifar
Bella Hadid er fyrirsæta ársins samkvæmt GQ.
Bella Hadid er fyrirsæta ársins samkvæmt GQ. Myndir/Getty
Bella Hadid mun ganga í Victoria's Secret tískusýningunni sem fer fram í París í lok nóvember. Bella hefur svo sannarlega sigrað tískuheiminn á þessu ári en ásamt því að hafa verið framan á ótal forsíðum þetta árið, þar á meðal Glamour, er hún einnig tilnefnd til bresku tískuverðlaunanna, verið skipuð sem andlit Dior snyrtivörulínunnar og margt fleira. 

Bella mun stíga í fótspor systur sinnar, Gigi Hadid, sem og vinkonu sinnar Kendall Jenner. Það er greinilegt að Bella er í fullu fjöru hvað farðar fyrirsætuferilinn og það eru engin merki um að hún sé að hægja á sér. 






×