Innlent

Bein útsending: Setning 42. þings ASÍ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ. Vísir/Vilhelm
42. þing ASÍ verður sett á Hilton Nordica kl. 10 í dag. Á þinginu, sem mun standa í þrjá daga, verður málefnavinna unnin í hópum eftir þjóðfundafyrirkomulagi eins og tíðkast hefur á undanförnum þingum Alþýðusambandsins með góðum árangri.

Í dag verður rætt um nýtt samningalíkan að Norrænni fyrirmynd og á morgun verður fókusinn settur á velferðar- og vinnumarkaðsmál. Á föstudag verður svo kosið í embætti til næstu tveggja ára, þar á meðal forseti ASÍ, varaforsetar og í miðstjórn ASÍ.


Á morgun kl. 14 verður efnt til pallborðsumræðna með leiðtogum þeirra sjö stjórnmálaflokka sem líklegastir eru að ná fólki inn á þing eftir kosningarnar um samhengið á milli efnahagslegs- og félagslegs stöðugleika. Þessi umræða og opnun þingsins á miðvikudag verða sýndar í beinni útsendingu hér á heimasíðu ASÍ.

Beina útsendingu frá setningunni má sjá hér að neðan en útsendingin stendur til 11:15.


 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×