Lífið

Beckham með nýtt tattoo

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Beckham er maðurinn.
David Beckham er maðurinn. vísir/getty
Knattspyrnugoðsögnin David Beckham er kominn með nýtt húðflúr og er það tileinkað dóttur hans Harper.

Beckham fékk sér nafn hennar á hálsins fyrir þó nokkru en nú hefur hann bætt við „Pretty Lady“ fyrir ofan nafnið hennar.

Þessum fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu birti mynd á Instagram af nýja tattoo-inu á sunnudaginn. Á dögunum húðflúraði hann síðan töluna 99 á litla puttann en hann og Victoria Beckham giftu sig einmitt það ár.

Þá birti hann mynd á Instagram og skrifaði „99 var gott ár fyrir mig.“

Þess má einnig geta að árið 1999 vann Manchester United þrennuna eftirsóttu, eða ensku bikarkeppnina, ensku deildina og síðan Meistaradeild Evrópu í hádramatískum úrslitaleik gegn FC Bayern.

Check out my new tattoo. Watch it being made on #myeye #DBxmyeye @myeyeapp

A photo posted by David Beckham (@davidbeckham) on

99 was a good year for me ...

A photo posted by David Beckham (@davidbeckham) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×