Lífið

Bauð upp á pítsu til að komast inn á tónleika

Baldvin Þormóðsson skrifar
Aaron Paul stóð sig vel í Breaking Bad.
Aaron Paul stóð sig vel í Breaking Bad. vísir/getty
Þrátt fyrir að vera einn af frægustu leikurum Hollywood eftir frammistöðu sína í vinsælu þáttaröðunum Breaking Bad þá átti Aaron Paul víst erfitt með að komast inn á leynitónleika hljómsveitarinnar Arcade Fire í fyrrnefndri Hollywood borg.

Arcade Fire gerðu allt vitlaust á Coachella en í kjölfar tónlistarhátíðarinnar hélt hljómsveitin litla tónleika á tónleikastaðnum Roxy þar sem aðeins útvaldir fengu að komast inn.

Leikarinn knái Aaron Paul sendi hljómsveitinni skilaboð að ef þeir hleyptu honum inn á tónleikanna myndi hann gefa þeim pítsu.

Hljómsveitin svaraði leikaranum á augabragði með skilaboðunum Þú kemur með pítsu og við djömmum!

Ekki er vitað hvort að Paul hafi komið færandi hendi á tónleikanna en hann tísti fögrum orðum um hljómsveitina og lét fylgja með myndskeið sem hann tók af sjálfum sér á tónleikunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×