Barnaföt á lágu verði tinnaros@frettabladid.is skrifar 31. janúar 2013 06:00 Kílóið á 4.000 krónur Laufey og Þórir sonur hennar standa vaktina í Blómabörnum alla virka daga. Þar eru reglulega haldnir kílóamarkaðir og er þá hægt að kaupa eitt kíló af barnafötum á 4.000 krónur. Fréttablaðið/GVA „
Hingað kemur reglulega fólk sem hefur aldrei heyrt af versluninni og skemmtilegt að það verður alltaf jafn hissa á hvað sé hægt að fá mikið fyrir lítinn pening," segir Laufey Aðalsteinsdóttir, eigandi Blómabarna. Blómabörn er verslun sem selur notaðan en heillegan barnafatnað á börn frá fæðingu upp í um tólf ára aldur. „Það kemur inn mest af ungbarnafötum enda haldast þau föt yfirleitt heilleg en fara frekar að slitna eftir að börnin eru komin meira á stjá, um tveggja ára aldur," segir Laufey. Hún fer sjálf yfir öll föt sem er komið með í verslunina og tekur til dæmis ekki við neinu sem er með blettum eða götum. „Ég vel þetta svolítið eftir því hvað ég myndi vilja kaupa sjálf," segir hún. Í augnablikinu segir hún vera gríðarlegt framboð af fötum og að um þrjátíu manns sem bíði eftir að selja henni föt, en bæði er hægt að fá pening í þeirra stað eða önnur föt. „Ég reyni að eiga sem minnstan lager. Ég vil frekar koma fötunum beint í sölu þegar ég tek við þeim. Ég er samt smám saman að auka vöruúrvalið og reyni að fylla á helmingi meira en ég sel. Fólk vill auðvitað frekar versla þar sem meira úrval er í boði," segir hún. Yfirleitt eru fötin seld í stykkjatali en reglulega heldur Laufey kílóamarkað og selur þá kíló af fötum á 4.000 krónur. Slíkur markaður er til að mynda í gangi núna og verður fram í miðjan febrúar. Það var fyrir slysni að Laufey leiddist út í reksturinn en hún hafði enga reynslu af verslunarrekstri þegar hún keypti Blómabörn í júlí síðastliðnum. „Ég var í fæðingarorlofi og var hérna að versla þegar ég heyrði eigandann segja öðrum kúnna frá því að búðin væri að loka. Sú hafði stofnað búðina þremur árum áður og var orðin rosalega þreytt, enda mikið álag þegar maður er einn í þessu og getur aldrei tekið sér frí. Mér þótti svo sorglegt að búðin væri að loka að ég ákvað að skella mér bara í þetta. Það hentar mér líka rosalega vel að ég get verið með strákinn minn með mér í vinnunni," segir Laufey, en hún á fimmtán mánaða gamlan son, Þóri. Verslunin Blómabörn er staðsett að Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði og er opin alla virka daga frá eitt til hálf fimm, nema á fimmtudögum þegar opið er til sex.Hér má sjá facebook-síðu verslunarinnar.
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira