Fótbolti

Bandaríski HM-hópurinn hefur spilað 101 landsleik að meðaltali

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/twitter.com/ussoccer_wnt
Jill Ellis, þjálfari bandaríska kvennalandsliðsins, tilkynnti í gær þá 23 leikmenn sem munu spila fyrir hönd Bandaríkjanna á HM í Kanada í sumar.

Bandaríski hópurinn er gríðarlega leikreyndur og það sést vel á því að þessi 23 leikmenn hafa spilað 101 landsleik að meðaltali sem er ótrúleg tala. Meðaldur hópsins er 28 ár.

Hópurinn nær yfir hundrað leiki að meðaltali þrátt fyrir að þrír af leikmönnunum hafi spilað færri en tíu landsleiki.

Fyrirliðinn Christie Rampone hefur spilað flesta landsleiki eða 304 en hún verður fertug í júní. Rampone er að fara að spila á sínu fimmta HM en átta leikmenn hópsins eru hinsvegar að fara að spila í sinni fyrstu heimsmeistarakeppni.

Tveir aðrir leikmenn í hópnum hafa spilað yfir tvö hundruð landsleiki, framherjinn Abby Wambach og miðjumaðurinn Heather O'Reilly. Níu leikmenn komnir með hundrað landsleiki og ein er með 99 landsleiki.



HM hópur Bandaríkjanna 2015:

Markmenn (3):

Ashlyn Harris (Washington Spirit)    6 leikir

Alyssa Naeher (Boston Breakers)        1 leikur

Hope Solo (Seattle Reign FC)        167 leikir

Varnarmenn (8):

Lori Chalupny (Chicago Red Stars)    99 leikir

Whitney Engen (Western NY Flash)    24 leikir

Julie Johnston (Chicago Red Stars)    9 leikir

Meghan Klingenberg (Houston Dash)    31 leikur

Ali Krieger (Washington Spirit)        63 leikir

Kelley O’Hara (Sky Blue FC)        57 leikir

Christie Rampone (Sky Blue FC)        304 leikir

Becky Sauerbrunn (FC Kansas City)    78 leikir

Miðjumenn (7):

Shannon Boxx (Chicago Red Stars)    189 leikir

Morgan Brian (Houston Dash)        26 leikir

Tobin Heath (Portland Thorns FC)    90 leikir

Lauren Holiday (FC Kansas City)        121 leikur

Carli Lloyd (Houston Dash)        192 leikir

Heather O’Reilly (FC Kansas City)    217 leikir

Megan Rapinoe (Seattle Reign FC)    100 leikir

Framherjar (5):

Sydney Leroux (Western NY Flash)    68 leikir

Alex Morgan (Portland Thorns FC)    84 leikir

Christen Press (Chicago Red Stars)    42 leikir

Amy Rodriguez (FC Kansas City)        121 leikur

Abby Wambach (ekki með lið)        239 leikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×