Bæjarbúar slegnir vegna kynferðisbrots Hrund Þórsdóttir skrifar 14. desember 2013 20:42
Lögreglan handtók fimm menn á Vestfjörðum í nótt í tengslum við alvarlegt kynferðisafbrot. Sóknarprestur á Ísafirði segir bæjarbúa slegna vegna málsins. Lögreglunni á Vestfjörðum var tilkynnt um brotið á fimmta tímanum í nótt, en þar kom fram að það hefði átt sér stað í húsi í bænum. Ung kona var flutt til skoðunar á heilbrigðisstofnun Vestfjarða, þar sem hún fékk viðeigandi aðhlynningu. Strax í kjölfarið voru fimm karlmenn handteknir og eru þeir í haldi lögreglunnar á Vestfjörðum, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins. Rannsókn er á frumstigi og því hafa nánari upplýsingar ekki fengist. Yfirheyra átti mennina í dag en nú skömmu fyrir fréttir var yfirheyrslum ólokið og ekki lá fyrir hvort mennirnir yrðu áfram í haldi. Ekki fengust upplýsingar um líðan stúlkunnar en samkvæmt upplýsingum fréttastofu dvelst hún ekki lengur á heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði segir fólk í bænum slegið. „Ofbeldisverk eru óalgeng hérna. Það hafa einstaka sinnum komið fyrir alvarleg ofbeldisverk eins og nauðganir en ég man ekki eftir svona hópnauðgun þar sem fimm menn eru hafðir í haldi grunaðir,“ segir Magnús og bætir því við að fólki sé brugðið.“ „Fólk náttúrulega tekur eftir þessum fréttum og talar um þetta. Fréttin er bara mjög ljót.“ Hann segir samheldni lítils bæjarfélags brjótast fram á stundum sem þessari. „Hér er góð samheldni í bænum og sérstaklega þegar eitthvað bjátar á, verða slys eða áföll og ég veit að það mun líka verða, í kringum þennan atburð.“
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira