Fótbolti

Ba nálægt því að skora frá miðju gegn Arsenal | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Demba Ba var nálægt því að skora fyrsta mark leiksins á upphafssekúndum leiksins í 0-0 jafntefli Besiktas og Arsenal í undankeppni Meistaradeildarinnar í gær.

Ba sem lék um tíma með Chelsea reyndi skot þegar Besiktas tók miðju í upphafi leiks og lenti Wojciech Szczesny í töluverðum vandræðum með skot Ba en náði að blaka boltanum til hliðar.

Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum og er staðan því 0-0 fyrir seinni leik liðanna sem fer fram á heimavelli Arsenal á þriðjudaginn. Skytturnar verða hinsvegar án Aaron Ramsey en hann fékk tvö gul spjöld í gær, það seinna fyrir afar litlar sakir.

Myndband af skoti Ba og rauða spjaldi Aaron Ramsey má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×