Fótbolti

AZ hafnar tilboði Werder Bremen í Aron

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron kom til AZ árið 2013 frá AGF í Danmörku.
Aron kom til AZ árið 2013 frá AGF í Danmörku. vísir/getty
AZ Alkmaar hefur hafnað tilboði þýska liðsins Werder Bremen í bandaríska landsliðsmanninn Aron Jóhannsson.

Þetta staðfesti Ernie Stewart, yfirmaður knattspyrnumála hjá AZ, í viðtali.

Eins og fram kom á Vísi í gær er Aron á óskalista Werder Bremen en honum er ætlað að fylla skarð argentínska framherjans Franco di Santo sem er farinn til Schalke 04.

Talið er að AZ vilji fimm milljónir evra fyrir Aron en Werder Bremen ku aðeins vera tilbúið að borga fjórar milljónir fyrir framherjann sem hefur leikið með AZ frá 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×