Íslenski boltinn

Avni Pepa áfram í Eyjum næstu þrjú árin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Avni Pepa og Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, handsala samninginn.
Avni Pepa og Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, handsala samninginn. mynd/íbv
Avni Pepa, fyrirliði ÍBV, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV.

Pepa kom til ÍBV fyrir tímabilið í fyrra og hefur stimplað sig inn sem einn af bestu miðvörðum Pepsi-deildarinnar.

Pepa hefur leikið 30 leiki í efstu deild fyrir ÍBV, þar af alla 11 deildarleikina í sumar.

Pepa er landsliðsmaður Kósovó sem er með Íslandi í riðli í undankeppni HM 2018.

Á sunnudaginn sækir ÍBV ÍA heim í Pepsi-deildinni. Fjórum dögum síðar mæta Eyjamenn svo FH-ingum í undanúrslitum Borgunarbikars karla á Hásteinsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×