Bílar

Aukning í bílasölu 90,8% í apríl

Finnur Thorlacius skrifar
Alls seldust 1.305 nýir bílar í apríl, en þar af fóru 777 til bílaleiga.
Alls seldust 1.305 nýir bílar í apríl, en þar af fóru 777 til bílaleiga.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1–30 apríl sl. jókst um 90,8% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 1.305 stk. á móti 684 í sama mánuði 2014 eða aukning um 621 bíla. Þar af voru 777 bílaleigubílar eða 59% af heildarnýskráningum fólksbíla í mánuðinum.

„Bílaleigubílar eru stór hluti af heildar nýskráningum fólksbíla á vormánuðum og og vega þeir hátt í heildinni. Hins vegar hefur bílasala tekið vel við sér það sem af er árinu og er það von okkar að sú þróun haldi áfram. 

Meðalaldur fólksbíla hér á landi er með því hæsta sem þekkist eða 12,7 ár og því nauðsynlegt að endurnýja flotann svo við fáum notið þess besta í bílum er snýr að umferðaröryggi og eyðslu,“ segir  Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×