Bílar

Aukaopnun Toyota á fimmtudagskvöld

Finnur Thorlacius skrifar
Jólastemmningin er mætt í Toyota.
Jólastemmningin er mætt í Toyota.
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 23. nóvember verður opið hjá Toyota Kauptúni til kl. 22:00. Þá verður aðeins 31 dagur til jóla og þess vegna verður 31 Toyota bíll boðinn á sjaldséðu tilboðsverði. Þá ætlar Toyota einnig að auðvelda viðskiptavinum sínum jólaundirbúninginn með því að bjóða sérstakan jólakaupauka.

Með öllum seldum bílum á sýningunni fylgir 100.000 kr. gjafakort í Smáralind og jólaveisla frá Krónunni. Forskot verður tekið á notalega jólastemmningu með hressingu í mat og drykk og góðri tónlist. Tilvalið er að kíkja í leiðinni í verslunina hjá Toyota Kauptúni. Þar verða frábær tilboð í tilefni af svörtum föstudegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×