Lífið

Augu skemmtilegur efniviður

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Myriam Marti tekur ljósmyndir af augum sem hún segir ótrúlega ólík.
Myriam Marti tekur ljósmyndir af augum sem hún segir ótrúlega ólík. Mynd/Myriam
Myriam Marti Guðmundsdóttir hefur undanfarið tekið ljósmyndir af augum fólks sem það getur svo keypt af henni og skreytt heimili sitt með. Hún hefur meðal annars ljósmyndað augu heillar fjölskyldu.

„Ég sá mynd heima hjá vini mínum sem var mynd af hring með fullt af litum, mynstri og svörtum punkti í miðjunni. Ég hélt að það væri mynd af auga en svo var ekki,“ segir Myriam þegar hún er spurð að því hvernig hugmyndin að verkefninu hafi kviknað.

Í kjölfarið tók hún mynd af auga systur sinnar en hún segir myndirnar koma einstaklega vel út uppi á vegg.

Það tók talsverðan tíma fyrir Myriam að finna út hvernig best væri að taka myndirnar og þurfti hún að prufa sig áfram með mismunandi linsur og lýsingu. Hún segir augun skemmtilegan efnivið, þau séu ótrúlega ólík og margt skemmtilegt hægt að sjá í þeim.

„Ég þarf ekki að photoshopa myndirnar mikið til að gera þær meira spennandi, lagfæri til dæmis glampa og svoleiðis en ég breyti engum litum eða neitt þannig, þess gerist ekki þörf,“ segir hún en hún hefur ekki enn tekið myndir af sínum eigin augum, en að sjálfsögðu prýða ljósmyndir af augum veggi heimilis hennar.

„Ég er ekki búin að gera það, ég er spenntari fyrir öðrum. Ég er meira að segja með auga systur minnar og mömmu minnar uppi á vegg hjá mér, þær fylgjast alltaf með mér,“ segir hún hlæjandi þegar hún er spurð að því hvort hún sé búin að taka myndir af sínu eigin auga.

Augun þín Hér er ein af ljósmyndum Myriam.mynd/Myriam
„Kona sem ég þekki les í augu og hún er búin að vera að lesa úr augunum og segja mér frá persónuleika hvers og eins. Það er rosalega skemmtilegt líka,“ segir Myriam en hún hefur verið að taka myndirnar erlendis en kemur til Íslands yfir páskana og hyggst halda verkefninu áfram hér en hefur ekki enn ákveðið hvað hún mun gera við ljósmyndirnar.

„Það er ekkert sem ég er búin að ákveða, en við sjáum til. Það hlýtur eitthvað skemmtilegt að koma út úr þessu,“ segir hún glöð í bragði. 

Hægt er að hafa samband við myriammarti@myriammarti.com og fleiri verk má skoða á vefsíðu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×