Innlent

Auglýst eftir eiganda svartrar Honda Civic

Atli Ísleifsson skrifar
Bíllinn var á ferðinni um klukkan 19:20.þann 17. febrúar.
Bíllinn var á ferðinni um klukkan 19:20.þann 17. febrúar. Vísir/Lögreglan
Lögregluembættið á Suðurnesjum auglýsir eftir ökumanni eða eiganda svartar Honda Civic bifreiðar sem var á ferðinni við Tölvu- og rafeindaþjónusta Suðurlands á Eyrarvegi á Selfossi þriðjudagskvöldið 17. febrúar. Bíllinn var á ferðinni um klukkan 19:20.

Í tilkynningu frá lögreglu er ökumaður beðinn um að hafa samband við lögreglu vegna rannsóknar á umferðaróhappi sem varð þar á bílastæðinu. Þá eru þeir sem upplýsingar geta veitt um málið eða þekkja bifreiðina, vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 2010, á milli kl. 08:00 og 16:00 eða senda tölvupóst á sudurland@logreglan.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×