Fótbolti

Auðvelt hjá Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Varane og Isco fagna í kvöld.
Varane og Isco fagna í kvöld. Vísir/AFP
Real Madrid vann í kvöld öruggan 4-1 sigur á spænska C-deildarliðinu Cornella í spænsku bikarkeppninni.

Raphael Varane skoraði tvívegis fyrir Madrídinga og þeir Javier Hernandez og Marcelo eitt hvor. Þetta var fyrri viðureign liðanna í fjórðu umferð.

Real vann í kvöld sinn tíunda sigur í röð í öllum keppnum en margir lykilmenn voru hvíldir í kvöld, til að mynda Cristiano Ronaldo, Toni Kroos og Luka Modric.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×