Íslenski boltinn

Auðvelt hjá KR og Fjölni

Þjálfarar KR hafa verið ánægðir með sína menn.
Þjálfarar KR hafa verið ánægðir með sína menn. vísir/vilhelm
KR valtaði yfir nágranna sína í Gróttu og Fjölnir skellti Fram í Lengjubikarnum í kvöld.

Almarr Ormarsson, Sören Fredriksen, Aron Bjarki Jósepsson og Þorsteinn Már Ragnarsson skoruðu mörk KR í 4-0 sigri á Gróttu á Seltjarnarnesi.

KR er í þriðja sæti síns riðils en Grótta er í sjötta sæti.

Fjölnir vann auðveldan 3-0 sigur á Fram þar sem Gunnar Már Guðmundsson, Aron Sigurðsson og Birnir Snær Ingason skoruðu mörkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×