Íslenski boltinn

Auðvelt hjá Fylki en jafnt hjá KV og Víkingi

Óli Þórðar var örugglega ekki sáttur með að fá aðeins stig gegn KV.
Óli Þórðar var örugglega ekki sáttur með að fá aðeins stig gegn KV.
1. deildarlið KV nældi í stig í kvöld í Lengjubikarnum gegn Pepsi-deildarliði Víkings. Lokatölur 2-2.

Það var Brynjar Orri Bjarnason sem skoraði jöfnunarmark KV sex mínútum fyrir leikslok að því er fram kemur á urslit.net. Atli Jónasson, markvörður KV, skoraði fyrra markið fyrir sitt lið. Agnar Darri Sveinsson skoraði seinna mark Víkings en ekki er vitað hver skoraði fyrra markið.

KV komst upp í fimmta sæti riðils 3 í A-deild með sigrinum en þetta var leikur í lokaumferð. Víkingur komst á toppinn en Stjarnan getur unnið riðilinn en liðið spilar gegn Víkingi Ó. á morgun.

Fylkir vann svo auðveldan 3-0 sigur á Þrótti. Hákon Ingi Jónsson og Egill Trausti Ómarsson á skotskónum fyrir Fylki sem tryggði sér þriðja sæti riðils 2.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×