Innlent

Atvinnulausum hefur fækkað

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3 prósent.
Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3 prósent. MYND/DANÍEL
Í júnímánuði voru 201.800 manns á aldrinum sextán til sjötíu og fjögurra ára voru á vinnumarkaði en það jafngildir 85,3 prósenta atvinnuþátttöku. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Af þeim sem voru á vinnumarkaði í júní voru 197.100 manns starfandi en 4.700 án vinnu og í atvinnuleit.

Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3 prósent. Samanburður mælinga fyrir júní 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan minnkaði um 1,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 700 en atvinnulausum fækkaði um 1.100 manns. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lítið í júnímánuði síðan árið 2008 þegar það mældist 2,2 prósent.

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×