Íslenski boltinn

Atli: Var búinn að kaupa miða á Þjóðhátíð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Atli Jóhannsson fiskaði víti sem Ólafur Karl Finsen skoraði úr.
Atli Jóhannsson fiskaði víti sem Ólafur Karl Finsen skoraði úr. vísir/daníel
Atli Jóhannsson brosti breitt í viðtölum við fjölmiðla eftir 3-2 sigur Stjörnunnar á Motherwell í kvöld en hann tryggði sínum mönnum sigur með glæsilegu marki í framlengingu.

„Það var smá yfirvinna hjá okkur í dag en Ingvar var eitthvað slappur í markinu og við ákváðum að sleppa vítakeppninni,“ sagði Atli í léttum dúr.

Markið dýrmæta skoraði hann eftir að hafa fengið boltann eftir innkast Ólafs Karls Finsen en Atli viðurkenndi að hann hafi ekki verið að hugsa neitt sérstakt þegar hann lét bara vaða að marki.

„Það kom hlaup frá framliggjandi miðjumanni og ég fór því í hans stöðu. Það fylgdi mér enginn og þá var ekkert annað að gera en að negla á markið, enda með vindinn í bakið.“

Atli virtist einfaldlega hissa þegar hann horfði á eftir boltanum í markið. „Ég sá ekki hvert boltinn fór. Ég hélt fyrst að hann hafði farið yfir. Svo sá ég Ólaf Karl brosa út að eyrum og þá þurfti maður að finna eitthvað fagn. Það gekk eitthvað illa - menn trúðu þessu bara ekki.“

Hann lofaði þó lið Motherwell og sagði að þar væri sterkt lið á ferð. „Ég held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir hversu öflugt þetta lið er. Það er mikill hraði í spilinu og alltaf eitthvað að gerast - því var það svo sterkt hjá okkur að koma til baka, og það tvisvar.“

„Þetta er skemmtilegt. Á þessum lifum við. Stuðningsmennirnir voru frábærir og menn vilja oft hætta að hvetja þegar liðið lendir undir en það gerðist ekki í kvöld. Við þurfum líka á slíkum stuðningi að halda og þeir hjálpuðu okkur að koma til baka.“

Stjarnan mætir næst Lech Poznan frá Póllandi og Atla líst vel á þá rimmu. „Ég var reyndar búinn að bóka miða á Þjóðhátíð og þarf því að breyta mínum plönum eitthvað. En þetta er ævintýri sem heldur áfram hjá okkur.“


Tengdar fréttir

Toft fékk í magann

Rene Toft, leikmaður Stjörnunnar, þurfti að fara á klósettið í framlengingunni gegn Motherwell í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×