Lífið

Ást Kött Grá Pjé á handriðum

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Kött Grá Pjé hefur mikið dálæti á köttum, naglalakki og handriðum. Og vafalaust fleiri hlutum líka.
Kött Grá Pjé hefur mikið dálæti á köttum, naglalakki og handriðum. Og vafalaust fleiri hlutum líka. Vísir/Vilhelm
Rapparinn og skáldið Kött Grá Pjé, eða Atli Sigþórsson eins og mamma hans kallar hann alltaf, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlunum upp á síðkastið en hann hefur verið nokkuð iðinn við að setja inn myndir af ýmiss konar handriðum. Blaðamaður ákvað að slá á þráðinn til Kötts og spyrja hann einfaldlega: Hvers vegna handrið?

„Ég er mjög lofthræddur og stend mig ítrekað að því að velta handriðum sem slíkum fyrir mér þegar ég er í tilteknum aðstæðum, þar sem mér finnst þeirra sérstaklega þörf. Fyrirlít handrið sem gegna hlutverki sínu illa, eða hlutverkum; því annars vegar að auka öryggi mitt og hins vegar að láta mig finna til öryggiskenndar. Hef þannig lært það hvað ég kann að meta við handrið og hvað ekki og smám saman urðu tilfinningarnar í garð handriða og handriðaþeoríu mjög sterkar. Notagildi og fagurfræði hafa mikið til runnið saman hjá mér, oftar en ekki finnst mér fúnksjónal handrið jafnframt falleg þó það sé ekki algilt. Svo er náttúrulega ósköp blátt áfram metafóra í þessu öllu saman, sem rótlaus maður tengir auðveldlega við,“ segir Kött um málið.

Þá vitum við það. Kött Grá Pjé gaf nýlega út bókina Perurnar í íbúðinni við góðar viðtökur, hann stefnir á að gefa út plötu fljótlega og svo mun hann koma fram á Sónar-hátíðinni á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×