Íslenski boltinn

Ásmundur hættur með ÍBV | "Gengur ekki upp að taka annað tímabil“

Guðmundur Tómas Sigfússon skrifar
Undir stjórn Ásmundar bjargaði ÍBV sér frá falli.
Undir stjórn Ásmundar bjargaði ÍBV sér frá falli. Vísir/Andri
„Ég er svekktur með þessa niðurstöðu í dag, mér fannst vera góður hugur í mönnum, fínar æfingar í vikunni og fín stemning í gær og fyrir leik,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Eyjamanna, eftir tap sinna manna í dag gegn ÍA.

„Við töluðum um að breyta aðeins sögunni, en ÍBV hefur ekki unnið síðasta leik í deild síðan 2007, þá gegn mér í Fjölni. Við ætluðum að snúa þessu við í dag en það tókst ekki því miður.“

Ásmundur óskaði ÍA til hamingju með sigurinn.

„Skagamenn enda sumarið sitt vel, búnir að eiga frábært sumar. Ég óska þeim til hamingju með það, þeir eiga það fyllilega skilið,“ sagði Ásmundur sem var ósáttur með seinna mark Skagamanna.

„Það vantaði lítið upp á, við gefum þeim mjög ódýrt mark, sérstaklega seinna markið eftir aukaspyrnuna. Við vorum trekk í trekk í möguleikum að setja á þá en það vantaði herslumuninn.“

Eyjamenn vildu fá víti í tvígang undir lokin þegar Víðir Þorvarðarson var í sviðsljósinu.

„Mér fannst vítalykt af þessu í bæði skiptin en dómararnir sögðust sjá þetta betur.“

Ásmundur tók við liði ÍBV í sumar eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Fylkiþ

„Þetta var skrýtið sumar hjá mér ef maður lítur yfir þetta. Heilmikil reynsla og ég held að ég hafi bætt nokkrum árum í reynslubankann á þessu ári. Það er eitthvað sem maður þarf að taka með sér.“

ÍBV gaf það út rétt eftir leik, að Jóhannes Þór Harðarsson, myndi ekki halda áfram með liðið. Þá staðfesti Ásmundur það við okkur að hann myndi ekki vera áfram.

„Það kom til greina, við höfum rætt saman og spáð í spilin. Ég er búinn að vera að fara yfir mín mál, ég er með stóra fjölskyldu og ýmislegt í gangi uppi á landi. Ég hef tilkynnt þeim það að það mun ekki ganga upp, ég mun ekki halda áfram hér.“

Einhver orðrómur var í gangi um það að Ásmundur myndi taka við Fram, en hann var ekki tilbúinn að tjá sig um það.

„Hvað verður, verður bara að koma í ljós. Fyrsta skref var að klára hlutina hér og sjá hvort það gæti gengið upp, þetta er staðan núna.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×