Lífið

Asíski draumurinn hafinn: „Átján prósent líkur á því að ég komi lifandi heim“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Strákarnir í höfuðstöðvum Dohop á föstudaginn ásamt Jóhanni Þórssyni, markaðsstjóra Dohop.
Strákarnir í höfuðstöðvum Dohop á föstudaginn ásamt Jóhanni Þórssyni, markaðsstjóra Dohop. vísir/eyþór
Tökur á nýrri seríu sem mun bera nafnið Asíski draumurinn hófust í gær. Þar munu koma fram Auðunn Blöndan, Steinþór Hróar Steinþórsson, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon líkt og í síðustu þáttaröð.

Asíski draumurinn verður framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012.

„Vonandi sleppur þetta. Það eru svona átján prósent líkur á því að ég komi lifandi heim,“ segir Steindi Jr.

„Þetta leggst alveg hrikalega vel í okkur. Við erum búnir að undirbúa okkur vel en vissulega eru alltaf einhverjir óvissuþættir, en það er nú fallega við þetta allt saman. Að sjálfsögðu er stefnan sett á að vinna keppnina en eins og þið vitið þá er Auðunn Blöndal með mér í liði og við erum báðir með mikið keppnisskap.“

Hann segir að þegar þessi lið mættust í Evrópska draumnum þá hafi þeir tapað á svindli.

„Að okkar mati. Við erum hungraðir og brjálaðir, þetta verður eins og að stela nammi af barni. Sem er reyndar í stigareglunum, án gríns, veit ekkert hvernig það komast þarna inn.“

Steindi segist vera mjög stressaður fyrir þessu ferðalagi.

„Ég er stressaður fyrir eins og til dæmis bara hugmyndin að fara fíflast í fólki í landi sem ég vissi varla að væri til. Það er eitthvað sem ég bjóst ekki við að gera þegar ég kom inn í þennan heim. Svo veit ég ekki alveg hvernig stemningin er þarna í Asíu, þetta er auðvitað allt annar menningarheimur,“ segir Steindi og er hræddur við að þurfa að borða djúpsteiktar tarantúlur eða boxa við kengúrur.

Í Ameríska draumnum ferðuðust Auðunn Blöndal og Egill Gillz saman í liði ásamt Sveppa og Villa sem voru í hinu liðinu um Bandaríkin þar sem þeir leystu ýmsar skemmtilegar þrautir líkt og að láta löggu hlæja og að hafa saurlát á ógeðslegu almenningssalerni.

Í Evrópska draumnum tók Steindi svo við keflinu og ferðaðist um með Audda en Pétur Jóhann tók við keflinu í liði Sveppa og saman ferðuðust þeir félagar um Evrópu í sama tilgangi, að leysa þrautir og fá fleiri stig en hitt liðið. Þar fóru þeir félagar meðal annars í fallhlífarstökk.

Ljóst er að þeir félagar munu ganga langt í að toppa sig í ferðalaginu um Asíu en áhugavert verður að sjá hvaða þrautir þeir munu taka að sér að leysa.

Drengirnir mættu allir í höfuðstöðvar DOHOP á föstudaginn og sóttu flugmiðana sína. Þeir héldu síðan út til Asíu í gær. 

Hér í London skilja leiðir. Let the games BEIJING! #Asískidraumurinn

A photo posted by Auðunn Blöndal (@audunnblondal) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×