Lífið

Ártún valin best í Chicago

Freyr Bjarnason skrifar
Guðmundur Arnar Guðmundsson, leikstjóri.
Guðmundur Arnar Guðmundsson, leikstjóri.
Ártún, stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, var valin besta leikna stuttmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago.

Hún hlaut að launum Gullna skjöldinn. Guðmundi hefur verið boðið að sýna Ártún á fjölda erlendra kvikmyndahátíða, þar á meðal á hátíð í Zagreb í Króatíu, á norrænum kvikmyndadögum í Lübeck í Þýskalandi, norrænni hátíð í Hollandi og á evrópsku stuttmyndahátíðinni í Brest í Frakklandi.

Önnur stuttmynd eftir Guðmund Arnar, Hvalfjörður, hlaut dómnefndarverðlaun í Chicago í fyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×