Glamour

Loðnir inniskór frá Rick Owens x Birkenstock

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot
Birkenstock tilkynnti um samstarf sitt við ameríska fatahönnuðinn Rick Owens fyrr í dag, og von er á inniskónum um miðjan mars mánuð. Skórnir sem við höfum séð virðast vera mjög klassískir Birkenstock sandalar, en eru hins vegar loðnir. Það verður spennandi að sjá hvort að það verði fleiri týpur í boði og hvernig þær munu líta út.

Loðnir inniskór hafa verið vinsælir undanfarið og mun þetta samstarf eflaust verða mjög vinsælt. Samstörf í tískuheiminum hafa verið gríðarlega áberandi og er það ekki að fara að minnka. Það er víst að Birkenstock ætla aldeilis að halda sér í tískuheiminum.






×