Glamour

Fullkomið fyrir íslenskt veðurfar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Herralína Fendi fyrir veturinn 2018 átti sér stað á gervi-flugvelli, sem búið var að koma upp á sýningarstað. Töskur fóru hring eftir hring á færibandi, þar sem fyrirsæturnar voru ferðamenn. Praktískar flíkur voru mjög áberandi, eins og regnjakkar og úlpur.

Hattarnir vöktu þó mikla athygli og þóttu ansi fyndnir, en nokkurskonar regnhlífahatt er um að ræða. Hattar og húfur voru mjög áberandi á tískupallinum, eins og annar praktískur búnaður, eins og skóhlífar.

Það er frábært þegar tíska og praktík koma saman sem er svo sannarlega hægt að segja um þessa línu hér.






×