Glamour

Kendall Jenner með langan slóða í Cannes

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Maður er ekki stjarna með stjörnum nema vera í Cannes þessa dagana þar sem rauði dregilinn er sjóðandi. Þar á meðal er fyrirsætan Kendall Jenner sem gekk tískupallinn á góðgerðaviðburði í tengslum við hátíðina.

Fataval hennar hefur vakið athygli, eins og alla jafna, en hún virðist hafa tekið ástfóstri við að klæðast fatnaði með löngum slóða sem hún dregur á eftir sér. Einkar ópraktíst en töff. Það verður að segjast. 

Það sem Jenner er mikill trendssetter þá getum við alveg átt von á því að þetta verði komið í bullandi tísku innan skamms. 






×