Handbolti

Aron og félagar fengu PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron og félagar slógu Montpellier út í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Aron og félagar slógu Montpellier út í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. vísir/getty
Aron Pálmarsson og félagar í ungverska meistaraliðinu Veszprém mæta Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Vardar og Barcelona.

Úrslitahelgi Meistaradeildarinnar fer að venju fram í Lanxess höllinni í Köln. Undanúrslitaleikirnir fara fram laugardaginn 3. júní og úrslitaleikurinn og leikurinn um 3. sætið degi seinna.

Veszprém komst í úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra þar sem liðið tapaði á ævintýralegan hátt fyrir Kielce eftir vítakastkeppni. Aron var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×