Fótbolti

Suarez með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar í stórsigri | Sjáðu mörkin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Barcelona vaknaði heldur betur til lífsins í kvöld er liðið gerði sér lítið fyrir og vann 8-0 stórsigur á Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Börsungar höfðu ekki unnið síðustu fjóra deildarleiki sína auk þess sem að það féll úr leik í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

En leikmenn Barcelona minntu á sig í kvöld með ótrúlegri frammistöðu. Þar gekk Luis Suarez fremstur í flokki en hann skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú önnur.

Suarez lagði upp mörk fyrir Ivan Rakitic, Lionel Messi og Neymar en Marc Bartra skoraði svo eina mark leiksins sem Suarez átti ekki beinan þátt í.

Barcelona er með þriggja marka forystu á Atletico Madrid þegar þetta er skrifað en Atletico er einnig að spila í kvöld og mætir Athletic Bilbao. Real Madrid er svo fjórum stigum á eftir Barcelona en mætir Villarreal í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×