Íslenski boltinn

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KR 1-4 | Öruggur KR sigur í nágrannaslagnum

Anton Ingi Leifsson á Vodafone-vellinum skrifar
Vísir/Vilhelm
KR gerði góða ferð á Hlíðarenda í dag og unnu enn einn sigurinn á þeim velli í dag, 4-1. Með sigrinum setur KR mikla pressu á toppliðin, FH og Stjörnuna. KR-ingar hafa aldrei tapað á Hlíðarenda síðan nafninu á vellinum var breytt í Vodafone-völlinn.

Níu mínútna kafli í lok fyrri hálfleiks gerði út um leikinn, en Aron Bjarki Jósepsson, Kjartan Henry Finnbogason og Almarr Ormasson komu röndóttu gestunum í 3-0 gegn afar andlausu liði Vals.

Nýju mennirnir í liði Vals, Billy Berntsson og Tonny Mawejje fóru beint inn í liðið hjá Val og Kristinn Freyr Sigurðsson kom inn í stað Indriða Áka Þorlákssonar sem var ekki í leikmannahóp liðsins. Hjá KR var ein breytingar frá stórleiknum gegn Celtic. Almarr Ormarsson kom inn í liðið í stað Gonzalo Balbi.

KR tapaði fyrri leik liðanna og ætluðu því líklega að hefna ófaranna. Þeir þurftu einnig að vinna ætluðu þeir sér að halda sér í toppbaráttunni og setja pressu á Stjörnuna og FH. Valsmenn gátu með sigri blandað sér í baráttuna um Evrópusætið með sigri, en þeir höfðu unnið einn af síðustu 5 leikjum.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð kaflaskiptur. Valsmenn byrjuðu af ágætis krafti og virtust til alls líklegir. Þeir fengu eitt til tvö fín færi og voru meira með boltann, en KR-ingar biðu aftar á vellinum en þeir eru þekktir fyrir og beittu hröðum skyndisóknum. Valsmenn fengu besta færi fyrri hluta fyrri hálfleiks þegar Kolbeinn Kárason skallaði framhjá úr dauðafæri, en þeir fengu ekki mikið fleiri opin færi.

Það voru hins vegar gestirnir sem tóku forystuna. Eftir 28. mínútur komust þeir yfir með marki frá Aroni Bjarka og níu mínútum síðar var staðan orðin 3-0! Já, þetta er ekki innsláttarvilla. Kjartan Henry Finnbogason og Almarr Ormarsson bættu við mörkum eftir afar dapran varnarleik Valsmanna, sérstaklega í þriðja markinu. Tonny Mawejje náði þó að klóra í bakkann fyrir gestina fyrir lok fyrri hálfleiks með marki fimm mínútum fyrir hálfleik.

Eins og fyrr segir var fyrri hálfleikurinn nokkuð kaflaskiptur. Valsmenn komu inn að krafti í upphafi leiks, en gestirnir fengu svo á lagið og gerði þrjú mörk á níu mínútna kafla. Varnarleikurinn var ekki uppá marga fiska í þessum mörkum KR.

Patrick Pederson kom inná í lið Valsmanna í fyrri hálfleik og átti hann að færa meira líf í sóknarleik Valsmanna, en Kolbeinn Kárason sem gerði afar lítið í fyrri hálfleik. Það gekk ekki betur en svo að KR-ingar skoruðu fimmta mark leiksins og staðan orðin 4-1. Þá var leik lokið. Gestirnir voru búnir að sigla sigrinum í hús og byrjuðu að gera breytingar á sínu liði enda stórleikur framundan í Skotlandi á þriðjudag, gegn skosku meisturunum í Celtic.

Nokkuð þægilegur KR-sigur staðreynd. Valsmenn voru frískir í um það bil 25-30 mínútur í fyrri hálfleik, en ekki var það mikið meira. Gary Martin lék á alls oddi og skoraði eitt mark og lagði upp eitt. Hann dreifði boltanum vel, en Kjartan Henry átti einnig mjög góðan leik sem og flest allir leikmenn KR.

Með sigrinum er KR enn í þriðja sæti deildarinnar, nú einu stigi á eftir Stjörnunni sem er í öðru sæti og þremur á eftir FH sem er í því fyrsta. Bæði liðin eiga þó leik inni. Valsmenn sigla hins vegar lygnan sjó í sjötta sæti, en það er langt frá því að vera ásættanlegur árangri á Hlíðarenda.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR: Hugsum bara um rassgatið á sjálfum okkur„Eftir fyrstu mínútúrnar þá tókum við þetta dálítið yfir. Sóttum meira og fundum þau svæði sem við vorum að leita að. Við ætluðum að leyfa þeim að koma framar á völlinn," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í leikslok.

„Fyrsta markið gaf okkur sjálfstraust. Við skoruðum góð mörk og Kjartan skoraði sérlega flott mark. Það var einnig kominn tími á að Almarr myndi skora og það var bara gaman. Ég var ánægðastur með bygginguna á sóknarleiknum í mörkunum, þá sérstaklega síðari tveim í fyrri hálfleik."

„Það var gríðarlega gott að komast í 3-0, en ég var virkilega ósáttur á að fá á mig mark undir lok í fyrri hálfleiks. Við hefðum getað gert þetta þægilegra í síðari hálfleik með að vera 3-0 yfir, en við skorum snemma í síðari hálfleik og þá var þetta búið. Þá var allur vindur úr Valsmönnum," sagði Rúnar og aðspurður hvort þeir væru ekki að setja pressu á toppliðin svaraði hann:

„Ég veit það nú ekki. Við fáum þrjú stig sem við þurfum að fá til þess að koma okkur nær þeim. Þetta er það eina sem við getum gert; að hugsa um rassgatið á sjálfum okkur. Við megum ekki misstíga okkur," sem er spenntur fyrir útileiknum gegn Celtic í Meistaradeildinni á þriðjudag.

„Við erum að fara í gífurlega erfiðan útileik. Við þurftum að hlaupa mikið hérna heima á Íslandi, því þeir voru mest allan tímann með boltann og eru með frábært lið, sterkara lið en ég hefði gert mér grein fyrir. Fyrir vikið þá fannst mér leikur okkar og strákana mjög góður. Auðvitað fengum við á okkur eitthver færi, en þeir skoruðu ekki nema þegar fimm mínútur voru eftir og rétt áður fengum við mjög fínt færi sem hefði getað snúið dæminu við."

„Við erum að fara í rosalega erfitt verkefni og það mun reyna á hópinn að hlaupa og berjast gegn Celtic á útivelli. Þeir létu boltann ganga hratt hér á KR-vellinum og ég efast ekki um að þeir geti gert það ennþá hraðar á heimavelli," sagði Rúnar brosandi í leikslok.

Magnús Gylfason, þjálfari Vals: Áhyggjuefni hvað við tökum fá stig á heimavelli„Þetta var gríðarleg vonbrigði. Mér fannst við byrja betur og vera líklegri til að skora. Síðan fáum við mark á okkur eftir hornspyrnu," sagði Magnús Gylfason, þjálfari Vals eftir leik.

„Bjarni (Ólafur Eiríksson) var útaf vegna höfuðhöggs og menn voru ekki klárir í hornspyrnunni og boltinn dettur fyrir þá og þeir komast yfir gegn gangi leiksins. Síðan komu tvö mörk í kjölfarið sem gerðu út um leikinn."

„Þeir gera tvö mörk svo strax í kjölfarið, en við náðum að klóra í bakkann fyrir hálfleik. Næst mark var mjög mikilvægt og þeir skoruðu það og eftir það áttum við engin svör," og aðspurður hvernig honum fannst nýju mennirnir koma inn í leik Valsmanna svaraði Magnús:

„Mér fannst þeir spila ágætlega, sérstaklega Mawejje. Billy var ágætur og Daði kom frískur inn, en í erfiðri stöðu."

„Við fjarlægumst þann pakka sem við ætlum okkur að vera í með tapi hérna í dag, en við hættum ekkert. Þetta eru ellefu leikir í seinni umferðinni og við náðum ekki nægilega miklu úr fyrri umferðinni. Það eru tíu leikir eftir, en við náum ekki neinu með svona frammistöðu," sem segir Vals-liðið þurfa gera Vodafone-völlinn að meiri gryfju.

„Það er áhyggjuefni hvað við tökum fá stig hérna. Við náum ekki að búa til neina gryfju hérna."

„Patrick er að ná sér og við vitum það að þegar hann er heill er hann hörku framherji. Við erum með nægilega marga framherja, það vantar ekkert uppá. Við þurfum bara gera betur," sagði Magnús í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×