Gaf skýrslu tveimur dögum fyrir húsleitirnar 22. febrúar 2010 21:17 Steingrímur Wernersson.
Steingrímur Wernersson, gjarnan kenndur við Milestone, fór að eigin frumkvæði til sérstaks saksóknara og gaf skýrslu í máli fyrirtækisins tveimur dögum áður en fram fóru húsleitir hjá Sjóvá og Milestone í júlí á síðasta ári. Steingrímur sagðist ekki hafa neitt að fela þar sem hann hefði verið plataður. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld þar sem fjallað var um rannsóknina á Milestone og vitnað í afrit af yfirheyrslum yfir stjórnendum Sjóvá og Milestone. Steingrímur sagði aðspurður að heilbrigðisástand sitt væri ekki gott og að hann hefði þjáðst af alvarlegu þunglyndi. Hann hefði lítið komið að rekstri Milestone. Steingrímur sagði að Karl bróðir sinn og Guðmundur Ólason, framkvæmdastjóri Milestone, hefðu stjórnað fjárfestingum Sjóvá og bótasjóð fyrirtækisins og að Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Sjóvá, hefði ekki haft neitt um það að segja. Þór hefði ekki þorað að andmæla þeim. „Ef að Þór hefði verið maður sem hefði lamið í borðið og sagt nei, þá hefði hann bara verið rekinn." Þá sagði Steingrímur: „Þeir greinilega litu á bótasjóðinn sem sína eigin peninga. Bótasjóður var ódýrasta lán í heimi." Sjálfur sagði Þór í yfirheyrslunum að hann gæti verið vitur eftir á. Hann hefði haft mikið af hæfu fólki í kringum sig sem hann treysti. og að hann hefði lítið vitað um fjárfestingar Sjóvá. Aftur á móti sagði Karl að Þór hefði haft viðtækt umboð til að reka Sjóvá. Hlutverk hans hafi ekki eingöngu verið að sinna vátryggingarstarfsemi fyrirtækisins. „Það er bara ekki hægt samkvæmt lögum að ráða í hálfa stöðu forstjóra." Karl sagði að fjárfestingarstarfsemi Sjóvá hefði verið á ábyrgð forstjórans.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins ákærður fyrir nauðganir Erlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent Fleiri fréttir Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Sjá meira