Sýknuð af röngum sakargiftum - var hugsanlega nauðgað 12. október 2009 17:00 Fórnalamb. Sviðsett mynd úr safni.
Kona, sem var ákærð fyrir að hafa haft uppi alvarlegar og rangar sakargiftir með því að hafa með framburði fyrir lögreglu og fyrir dómi leitast við að koma því til leiðar að fjórir menn yrðu sakaðir um kynferðisbrot gegn henni, var sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn. Konan var ákærð í júlí fyrir að saka þrjá menn fyrir að nauðga sér. Mennirnir neituðu allir staðfastlega sökum og sýndu fram á það með hljóðupptökum úr símum sínum. Stúlkan hefur á hinn bóginn borið að vilji hennar hafi ekki staðið til þess að hafa kynferðismök við mennina og hafi henni verið þröngvað til kynferðismaka. Í dómsorði segir að hún hafi verið staðföst í framburði sínum um atvik að þessu leyti í skýrslutökum hjá lögreglu og fyrir dómi og var framburður hennar trúverðugur að mati dómsins. Þá er lýsing á atvikum sem höfð er eftir henni í skýrslu um læknisskoðun á Neyðarmóttöku í fullu samræmi við skýrslur hennar hjá lögreglu og fyrir dómi. Þá kemur fram að konan var undir áhrifum amfetamíns þegar atburðurinn átti sér stað. Hún heldur því fram að hún muni ekki eftir öllu sem gerðist vegna þessa. Það er staðfest af sérfræðingum að dómgreind bilist eftir að manneskja hefur neytt ákveðins lágmarks magns af amfetamíni. Sjálf reyndist konan vera sjöfalt yfir þeim mörkum. Sérfræðingur bar fyrir dómi að konan hafi lýst einkennum sem væru vel þekktar afleiðingar áfallastreitu og hefðu þessi einkenni komið í kjölfar þess atburðar sem hér um ræðir. Vitnið sagði vel þekkt að þeir, sem aðhefðust eitthvað sem samræmdist ekki þeirra „karakter", reyndu að útskýra það sem gerðist, jafnvel með því að búa til nýjar minningar. Annar sérfræðingur sagði að konan hefði sýnt einkenni sem samræmdust því að hún hefði mátt þola kynferðislegt ofbeldi. Þessi einkenni væru þekkt hjá þeim sem hefðu verið í aðstæðum þar sem þeir upplifðu sig bjargarlausa og óttaslegna. Hefði hegðun hennar verið mjög trúverðug miðað við að hún hefði upplifað eitthvað skelfilegt sem sæti í henni. Dómurinn taldi að hljóðupptökur sem liggja frammi í málinu verði að virða í því ljósi að konan var undir miklum áhrifum amfetamíns þegar hún lét þau orð falla sem þar koma fram. Þá eru hljóðupptökur sem fundust í símum mannanna samtöl sem áttu sér stað eftir að konan hafði haft kynferðismök við mennina. Verður ekkert af upptökunum ráðið hvað átti sér stað á milli þeirra þar á undan. Er það því mat dómsins að ekkert hafi fram komið sem hnekki staðhæfingu konunnar um að hún hafi skynjað atvik með þeim hætti sem hún lýsti. Er því ósannað að ákærða hafi haft ásetning til að bera mennina fjóra röngum sökum. Konan var því sýknuð.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Sjá meira