Ţagnameistarinn

Fréttablađiđ Fastir pennar 26. nóvember 2009 06:00
Ţorvaldur Gylfason.
Ţorvaldur Gylfason.
Ţorvaldur Gylfason skrifar:

Umsátrið eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins, er furðusmíð. Bókin vitnar um takmarkaðan skilning höfundarins og helzta heimildarmanns hans, fyrrum seðlabankastjóra, á efnahagsmálum. Við þetta bætist vandræðaleg hlutdrægni höfundarins ásamt veikri sannmæliskennd. Að lesa bókina er hálfpartinn eins og að hlusta á Richard Nixon seint um kvöld, en þó án formælinganna, sem voru fangamark Nixons. Styrmir notar engin stóryrði.

Ein lítil saga á bls. 51 bregður gagnlegri birtu á verkið. Þar er lýst samtali seðlabankastjórans við Timothy Geithner, nú fjármálaráðherra Bandaríkjanna, um mitt ár 2008 og viðbrögðum Geithners við þeim tíðindum, að forstjóri Evrópska seðlabankans „hefði nefnt þann möguleika, að Ísland leitaði til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðbrögð Geithners voru þessi…; „Aha. He offered you the kiss of death."" ... Og höfundur bókarinnar bætir við: „Þessi ummæli segja harla afdráttarlausa sögu um viðhorf Timothys Geithner til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins." Höfundurinn virðist ekki vita, að Geithner vann áður hjá AGS og stýrði þá þeirri lykildeild sjóðsins, sem mótar skilyrðin fyrir lánveitingum til aðildarlanda. Það er nær óhugsandi, að Geithner hafi reynt að varpa rýrð á AGS í samtali við erlendan seðlabankastjóra. Hver tryði þeim, sem héldi því fram, að höfundur Umsátursins hefði hallmælt Sjálfstæðisflokknum? Þeir, sem þekkja til AGS, hljóta að taka slíkri frásögn með fyrirvara, þótt höfundur bókarinnar taki hana trúanlega.

Sögunni af Geithner og öðrum slíkum sögum virðist ætlað að styrkja þann boðskap höfundarins, að Íslendingar hafi verið beittir „fantatökum" (bls. 103) og „flæmdir í fang Alþjóðagjaldeyrissjóðsins" (bls. 107). Hann hljómar eins og vitorðsmaður brennuvargsins, sem sagðist hafa verið flæmdur í fangið á slökkviliðinu. Þessi tónn bergmálar ræðu seðlabankastjórans hjá Viðskiptaráði fyrir ári. Þar færði hann Færeyingum „heila þökk og blessun" og öðrum ekki, þar eð Færeyingar reyndust einir þjóða fúsir til að lána Íslendingum fé án skilyrða og án milligöngu AGS. Höfundur Umsátursins hefði heldur kosið skilyrðislaust lán frá Færeyjum, hefði það dugað, en lán AGS, sem var háð því skilyrði, að hagstjórnin væri færð í heilbrigt og traustvekjandi horf. Í bókinni örlar hvergi á skilningi á þörfinni fyrir að komast hjá mun meira gengisfalli en varð til að hlífa efnahag fólks og fyrirtækja með miklar skuldir í erlendri mynt. Þar liggur rauði þráðurinn í efnahagsáætluninni, sem var gangsett meðan Sjálfstæðisflokkurinn var enn við völd og enn er unnið eftir.

Höfundur Umsátursins skilur ekki, hvers vegna ríkisstjórninni og Seðlabankanum var settur stóllinn fyrir dyrnar. Hann virðist ekki heldur skilja, að fjölskyldur þurfa stundum að sammælast um að stöðva ofdrykkju með afskiptum, sem sjúklingurinn kallar umsátur og fantatök. Honum er fyrirmunað að fjalla hlutlaust um orsakir bankahrunsins, enda skautar hann fram hjá því, að: (a) Sjálfstæðisflokkurinn seldi Landsbankann í hendur dæmdum sakamanni og syni hans við þriðja mann; (b) flokkurinn tryggði þannig framkvæmdastjóra flokksins framhaldslíf í bankaráðinu; (c) bankinn stofnaði útibú í Sankti Pétursborg, háborg rússnesku mafíunnar, svo sem Ríkisútvarpið greindi frá; (d) bankinn raðaði flokksmönnum á garðann; (e) aðaleigandi bankans og formaður bankaráðsins keypti Morgunblaðið; (f) nokkrum misserum síðar komst bankinn í þrot, og nema kröfurnar á hendur þrotabúinu nú meira en fjórfaldri landsframleiðslu; (g) aðaleigandi bankans lýsti sig síðan gjaldþrota í einu mesta gjaldþroti einstaklings, sem sögur fara af um heiminn; (h) bankastjórn Seðlabankans keyrði bankann í þrot og lagði þannig á herðar skattgreiðenda skuld, sem nemur um fimmtungi landsframleiðslunnar að mati AGS; og (i) nokkrir nánir samherjar höfundarins í Sjálfstæðisflokknum sæta nú opinberri rannsókn vegna gruns yfirvalda um lögbrot. Þögnin um allt þetta er ærandi á köflum og grefur undan gildi bókarinnar.

Höfundur Umsátursins ber samt léttari farangur en sumir flokksfélagar hans. Hann skilur, að upphaf hörmunganna má að nokkru leyti rekja til kvótakerfisins og til einkavæðingar bankanna eftir sömu forskrift. Kvótakóngar keyptu stjórnmálamenn í kippum, segir hann fullum fetum. Hann segir hneykslaður: „Bæði í Danmörku og Svíþjóð ráða innmúraðar og innvígðar klíkur ferðinni í viðskiptalífinu." (bls. 105). Hann hafði áður notað sama orðalag um tiltekinn leynifund: „Þegar ég talaði um þetta mál við Jón Steinar hafði ég Kjartan með. Þetta er eins innmúrað og innvígt og nokkur hlutur getur verið …" Þagnameistarinn lýsir nú eftir opnu og gagnsæju samfélagi. Hann hefur snúizt gegn sjálfum sér.



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ţagnameistarinn