Tilkynnt á leiðinni á Bessastaði að hún fengi ekki fálkaorðuna 28. apríl 2009 20:23 Carol Van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Mynd/GVA
Carol Van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var tilkynnt þegar hún var á leið á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á föstudaginn þar sem sæma átti hana heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu að ekkert yrði af orðuveitingunni. Fjallað var um málið í Kastljósi í kvöld og þar kom fram að sendiherrann hafi verið afar ósátt með uppákomuna. Mistök áttu sér stað hjá embætti forseta Íslands. Carol lýkur senn störfum sem sendiherra á Íslandi. Samkvæmt hefð óskaði hún eftir kveðjufundi með Ólafi Ragnari. Skömmu síðar barst bandaríska sendiráðinu bréf frá utanríkisráðuneytinu þess efnis að forsetinn ætlaði að sæma hana heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Sendiherrann má hins vegar ekki þiggja slíka orðu nema með samþyki sérstakrar prótókólskrifstofu sendiráða í Washington. Sú heimild fékkst og voru sendiherrahjónin boðuð á kveðjufund á Bessastaða síðastliðin föstudag. Sendiherrann afar ósáttur Nokkrum mínútum áður en sendiherrahjónin beygðu inn á afleggjarann að Bessastöðum fékk Carol símtal frá skrifstofu forseta Íslands þar sem henni var tilkynnt að forsetinn myndi ekki sæma hana orðunni. Fram kom í Kastljósþættinum að Carol hafi verið afar ósátt vegna þessarar uppákomu en hún hafi engu að síður á fundinn. Þá kom einnig fram að sendiherrann hafi túlkað orð forsetans þetta kvöld þannig að orðuna fengu aðeins þeir sem hennar væru verðugir. Orðunefnd sem tekur við og fjallar um tilnefningar um orðuveitingar fjallaði ekki um mál bandaríska sendiherrans. Á síðustu áratugum hafa þrír sendiherrar Bandaríkjanna hlotið fálkaorðuna.Forsetinn hefur beðist afsökunar Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands sem vitnað var í Kastljósþættinum í kvöld kemur fram að gerð hafi verið mistök í aðdraganda brottfarar fráfarandi sendiherra. Örnólfur Thorsson, forsetaritari, hafi sent erindi til prótókólskrifstofu utanríkisráðuneytisins um að ákveðið hefðii verið að sæma Carol heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu án þess þó að formlega hefði verið gengið frá ákvörðuninni. Ólafur Ragnar hefur beðið Carol afsökunar á þessum mistökum.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira