Kynna nýjan bjór í Kringlunni í dag Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. apríl 2009 10:21 Bjórinn verður kynntur til leiks í Kringlunni í dag.
Bjórframleiðandinn nIcebrew hefur samið við Bruggsmiðjuna, sem framleiðir hina sívinsælu bjórtegund Kalda, um að Bruggsmiðjan sjái um að markaðssetja á íslenskum markaði tvær bjórtegundir sem nIcebrew hefur verið með í þróun að undanförnu. Um er að ræða Icelandic Poverty Ale og Three Headed Monster Ale. „Já þetta eru skemmtileg tíðindi og til að fagna þessu og kynna okkur á Íslandi munum við vera með bás í ÁTVR í Kringlunni í dag þar sem við munum bjóða upp á smakk af bjórnum okkar," segir Ragnar Freyr Rúnarsson, framkvæmdastjóri nIcebrew í samtali við fréttastofu. Ragnar Freyr segist i samtali við fréttastofu lengi hafa verið áhugamaður um bjórmenningu. Hins vegar sé stutt síðan að hann hafi ákveðið að setja á fót nIcebrew, sem er örlítið brugghús. Ævintýrið hafi byrjað í eldhúsinu hjá honum í Danmörku. „Það er talað um microbrewery þegar menn ræða um lítil brugghús en nIcebrew myndi líklega flokkast sem picobrewery og þá er ég ekki að reyna vera dónalegur. Þó brugghúsið sé lítið eru hins vegar áætlanir um stóra og mikla bjóra," segir Ragnar Freyr í samtali við fréttastofu. Hægt verður að smakka Icelandic Poverty Ale og Three Headed Monster Ale á sérstakri kynningu í verslun ÁTVR í Kringlunni klukkan tvö í dag. Enn fremur munu verða gefnir hundrað kassar með blöndu af nIcebrew framleiðslunni og Kalda. -------- Athugasemd skrifuð 2. apríl 2009. Ekki var fótur fyrir þeim upplýsingum sem komu fram í fréttinni sem skrifuð var þann 1. apríl. Um aprílgabb var að ræða.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira