Ábyrgð Samfylkingarinnar

Fréttablaðið Aðsendar greinar 20. nóvember 2008 07:00
Hallgrímur Helgason skrifar um pólitíska ábyrgð
Hallgrímur Helgason skrifar um pólitíska ábyrgð

Með hverjum deginum sem líður síast inn sú furða og sú staðreynd að hér hefur land verið sett á hvolf og enn hefur ekki nokkur maður sagt af sér. Þeir sem blésu upp þá bankabólu sem sprakk svo illa framan í þjóðina eru reyndar flestir flúnir ofan í sínar vel fóðruðu matarholur en þeir og þau sem áttu að hemja vandann sitja enn.

Og nú er von á tröllaláni frá alþjóðasamfélaginu, mörg hundruð milljörðum króna, sem afhentar skulu þeim sem mesta ábyrgð bera á efnahagshruninu. Er skippernum, sem svaf af sér siglinguna en vaknaði við strandið, treystandi fyrir líflínu þjóðarinnar? Nei. Það má ekki gerast að sömu mönnum og settu Ísland á hausinn sé ætlað að reisa það við. Það bara gengur ekki.

Og með hverjum deginum sem líður vex ábyrgð Samfylkingar. Allt frá því Glitnir brotlenti í Seðlabankanum í lok september var tilfinningin lengi sú að Sjálfstæðisflokkurinn réði för í öllum helstu viðbrögðum.

Samfylkingarráðherrar voru ekki með í þeirri bílferð. Meira jafnvægi virtist nást eftir að Inigibjörg Sólrún sneri heim úr veikindaleyfi. Myndugleiki hennar og mælska var vel þegin eftir langar vikur af moðmælum og misvísandi skilaboðum. Á blaðamannafundum stjórnarpars gaf að líta tvo leiðtoga; þann sem kann að tala við þjóð sína og hinn sem kann það ekki.
En það verður að segjast eins og er að vikurnar á undan hafði Samfylkingin verið jafn veik og stýra hennar. Án formanns síns var hún sem höfuðlaus her. Það var líkt og Sjálfstæðisflokkurinn sæti einn í stjórn.

Og þrátt fyrir endurkomu formannsins, sem létti nokkuð af brjóstum samfylkingarmanna og kvenna, er þessi tilfinning því miður ekki alveg horfin, um leið og hún er blönduð áhyggjum af heilsu Ingibjargar Sólrúnar.

Hvað sem því líður virðist mörgum formaðurinn ekki alveg með á þeim nótum sem nú eru leiknar í íslensku samfélagi. Ekki síst þegar hún þvertekur fyrir mannabreytingar í ríkisstjórn. Stundum virðist manni meginmarkmið Samfylkingar með stjórnarsetunni sé það eitt að sýna þá ábyrgð að slíta því ekki á örlagastundu.

En það er hægt að sýna ábyrgð með öðrum hætti.




Nýjan ráðherra bankamála

Samfylkingar er ráðuneyti viðskipta og bankamála. Undir það heyrir Fjármálaeftirlitið, það eldvarnareftirlit sem brást svo herfilega að eftir stendur land í ljósum logum. Það er gersamlega óverjandi að þeir sem því stjórna sitji áfram. Og það er jafn óverjandi að ráðherrann sem fyrir því fór sitji áfram. Þegar allir bankar eru hrundir er augljóst að bankamálaráðherra er ekki lengur sætt. Þau rök að hann hafi ekki vitað um aðsteðjandi hættur, að Fjármálaeftirlitið hafi ekki sagt honum frá þeim, halda ekki. Ráðherra getur ekki skýlt sér á bakvið undirstofnun sína. Hann er og verður YFIR henni en ekki á BAKVIÐ hana.

Samfylkingunni er skylt að sýna gott fordæmi og stokka upp Fjármálaeftirlitið og skipa nýjan mann eða konu í ráðuneyti bankamála. Enginn á lengur von á því að sjálfstæðismenn segi sjálfviljugir af sér en þegar Samfylkingin þvertekur fyrir það, sitjandi í ríkisstjórn sem farið hefur með okkur í gegnum heilt þjóðargjaldþrot, er fokið í flest skjól. Við sem héldum að við værum að kjósa „nútímalegan jafnaðarmannaflokk", flokk sem væri eitthvað aðeins skárri en gömlu helspilltu helmingaskiptaflokkarnir. Við héldum að við værum að kjósa flokk lýðræðis, samræðustjórnmála og siðbótar í stjórnmálum.

Á Norðurlöndum hafa kollegar jafnaðarmanna sagt af sér af ýmsum tilefnum svo frægt er. Ráðherra jafnréttismála í Noregi varð uppvís að því að skora á vinkonu sína að sækja um stöðu sem hann átti að úthluta. Mona Sahlin varð uppvís að því að kaupa bleyjur og toblerone á kreditkort ríkisins. Hér á landi þyrfti ráðherra sjálfsagt að kaupa bleyjur og toblerone handa öllum kjósendum sínum á kostnað ríkisins áður en honum dytti í hug að segja af sér.




Fjármálaráðherra verður að víkja

Þegar Samfylkingin er búin að skipa nýja manneskju í bankamálaráðuneytið og reka yfirstjórn FME er hún komin með „móralskt umboð" til að þrýsta enn og aftur á breytingar í yfirstjórn Seðlabanka og fjármálaráðuneytis. Á báðum stöðum sitja menn í umboði þjóðarinnar sem eru rúnir öllu trausti. Hennar jafnt sem umheimsins.

Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins varð uppvís að því að selja bréf í Landsbankanum nokkrum vikum fyrir hrun, stuttu eftir að hann sat fund bankamálaráðherrans okkar og fjármálaráðherrans breska, um málefni þessa sama banka. Fjármálaráðherra verður að lúta sömu örlögum og bankamálaráðherra, honum er ekki sætt eftir að fjármálakerfið, peningamálastefnan, gjaldeyrisviðskiptin, krónan, bankarnir… allt er hrunið.

Um Seðlabankann þarf svo ekki að fara mörgum orðum. Raðmistök stjóra hans eru nú orðið tíunduð í erlendum miðlum og jafnvel virtustu stórblöð Evrópu eru farin að uppnefna hann „König David" svo aðeins er tímaspursmál hvenær nafn hans öðlast endemisfrægð á heimsvísu. Og á meðan sá maður situr enn með sín víðtæku baktjaldavöld mun traust og heiður Íslands njóta sömu frægðar.

Nú síðast undirstrikaði Seðlabankastjóri eigið vanhæfi með sínum sérlundaða hætti þegar honum var ætlað að tala við þjóð sína undir yfirskriftinni „Fjármálakreppan - Er lausn í sjónmáli?" en eyddi klukkutíma sínum í ræðustól í að tala eingöngu um sjálfan sig og aðeins í fortíð. Peningamál þjóðarinnar eru ein rjúkandi rúst en yfirmaður þeirra „lætur allt snúast um sjálfan sig," svo vitnað sé í hans næstbesta vin. Og auðvitað var tilgangurinn sá að frýja sig ábyrgð og benda á alla aðra. Stórmannlegt.

Að auki las svo seðlastjórinn yfir hausamótunum á ríkisstjórn með alvarlegum ásökunum um dug- og ráðaleysi. Hvers konar stjórn er það sem situr undir slíkum ávirðingum frá manni sem á að heita embættismaður hennar? Hve lengi enn þurfum við að vakna við slíkar ræður? Hve lengi enn ætlar hin undirgefna ríkisstjórn að leyfa manninum að „persónugera" vanda heillar þjóðar í sjálfum sér?




Þolinmæði á þrotum

Á meðan Samfylkingin situr í ríkisstjórn sem býður okkur upp á þennan farsa getur hún ekki búist við stuðningi okkar mikið lengur.

Ríkisstjórn sem ekki getur rekið þá sem reka þarf verður á endanum rekin sjálf. Ef ekki næsta laugardag, þá þarnæsta laugardag. Og ef ekki þá, þá þann þar á eftir. Hún verður rekin á hverjum laugardegi fram að kosningum. Því loforð um bráðlegar kosningar er eina loforðið sem þjóðin getur tekið af þessari ríkisstjórn.

Þolinmæði okkar er ekki endalaus en af réttlætiskenndinni eigum við meira en nóg.

Höfundur er rithöfundur.



Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Ábyrgð Samfylkingarinnar