Innlent

Ólafur Ragnar húðskammaði nágrannaþjóðir í hádegisverði

MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi nágrannaþjóðirnar Svíþjóð, Danmörku og Bretland fyrir að snúa baki við Íslendingum. Þetta mun hann hafa gert í hádegisverði með erlendum erindrekum í Reykjavík á föstudag eftir því sem fram kemur í norrænum miðlum.

Á vef norska ríkisútvarpsins segir að erindrekarnir hafi vart trúað sínum eigin eyrum enda hafi forsetinn komið fram með móðgandi ásakanir á hendur Bretum. Vísað er til minnisblaðs norskra yfirvalda um fundinn og bent á að fulltrúar Svíþjóðar og Danmerkur hafi setið hann.

Mun Ólafur Ragnar hafa hótað því að leita nýrra bandamanna þar sem núverandi bandamenn hefðu svikið landið. Þá mun forsetinn hafa viðrað þá hugmynd að Rússum yrði boðin aðstaða í gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli og mun sendiherra Rússlands, sem sat hádegisverðarfundinn, hafa verið hissa en brosað og gefið þannig til kynna að Rússar hefðu ekki þörf fyrir það.

Þá segir einnig í frétt norska ríkisútvarpsins að Ólafur Ragnar hafi einungis hrósað Norðmönnum og Færeyingum fyrir að hafa staðið við bakið á Íslendingum í fjármálakreppunni. Fréttinni lýkur á þeirri staðhæfingu að forsetinn hafi áður verið í systurflokki Sósíalíska vinstriflokksins og hann hafi engin formleg völd í utanríkismálum.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×