Viðskipti innlent

Enn biðstaða í Stork

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sjoerd Vollebregt, formaður framkvæmdastjórnar Stork heldur hér erindi á ársfundi samstæðunnar þar sem uppgjör hennar var kynnt í byrjun árs.
Sjoerd Vollebregt, formaður framkvæmdastjórnar Stork heldur hér erindi á ársfundi samstæðunnar þar sem uppgjör hennar var kynnt í byrjun árs. Markaðurinn/AFP

Marel, sem í gegnum eignarhaldsfélagið LME, fer með um fimmtungshlut í hollenska iðnfyrirtækinu Stork, stendur enn gegn væntanlegu yfirtökutilboði fjárfestingarsjóðsins Candover á félaginu.

Marel hefur hug á að kaupa Stork Food Systems matvælavinnsluvélahluta Stork. Samkvæmt heimildum Markaðarins er ákveðin biðstaða í málinu og hefur ekki enn komið til alvarlegra viðræðna milli stjórnar Stork og Marels um kaup á matvælavinnsluvélahlutanum. Vangaveltur eru uppi um hvort Candover muni lækka skilyrði í tilboði sínu, sem gerir ráð fyrir því að 80 prósent hluthafa að minnsta kosti taki tilboðinu, eða hækki jafnvel væntanlegt tilboð. Beðið er ákvörðunar sjóðsins þar að lútandi. Stjórn Stork hefur mælt með væntanlegu tilboði sem hljóðar upp á 47 evrur á hlut. Forstjóri Candover hefur ekki látið annað eftir sér hafa um málið en fleiri en ein leið liggi milli Rómar og Mílanó. Gengi bréfa Stork er um þessar mundir heldur yfir 47 evrum og því ólíklegt að yfirtökutilboð komi frá sjóðnum óbreytt.

Þá kann að hafa áhrif á næstu skref að hollenski bankinn ABN-Amro hefur dregið til baka stuðning sinn við yfirtökutilboð frá breska bankanum Barclays, en hann keppir við Royal Bank of Scotland (RBS) um að kaupa bankann. Vegur þar þyngst lagatúlkun í Hollandi um að stjórn bankans sé ekki stætt á að styðja tilboð sem færi hluthöfum minna í aðra hönd en tilboð frá öðrum. ABN-Amro fer því þá leið nú að mæla með hvorugu tilboðinu. Staðan er sögð sambærileg við stöðuna hjá Stork því Barclays ætlaði að halda rekstrinum óbreyttum, en RBS að skipta honum upp. Stærstu hluthafar Stork hafa lýst áhuga á því að skipta upp samstæðunni, en Candover er sagst sama sinnis og stjórn Stork sem ekki hefur viljað selja hluta frá kjarnastarfseminni. Þó vekur spurningar um afstöðubreytingu hjá stjórn Stork ákvörðun hennar frá því á fimmtudag um að selja frá samstæðunni til Bencis Capital Partners 60 prósenta eignarhlut í prentvinnsluhluta samstæðunnar, Stork Prints. Samkvæmt upplýsingum á vef samstæðunnar á þeirri sölu að ljúka í næsta mánuði.

Haft hefur verið eftir talsmanni Stork í hollenska viðskiptaritinu Het Financieele Dagblad að félagið hafi ekki heyrt af fleiri tilboðum í Stork þrátt fyrir orðróm um annað. Vangaveltur hafa verið uppi um viðræður Marels við fjárfestingarsjóði um gerð gagntilboðs í samstæðuna, en það hefur ekki fengist staðfest.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×