Níu ára barnshafandi stúlka í umsjá Þróunarsamvinnustofnunar 3. september 2007 13:13 Ungar mæður í Bluefields.
Á meðal ungra tilvonandi mæðra sem dvelja í mæðrahúsinu í Bluefields í Níkarakva, sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja, dvelur nú níu ára barnshafandi stúlka. Mál stúlkunnar hefur vakið fjölmiðlaathygli í landinu en hún var misnotuð af frænda sínum. Fóstureyðingar eru ólöglegar með öllu í landinu. „Þetta er hræðilegt og því miður alltof algengt hér að ungar stúlkur verði fórnarlömb ofbeldismanna og verði ófrískar í kjölfarið," segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar í Níkaragva. Hún segir að stúlkur sem verði þungaðar í kjölfar misnotkunar eigi ekki kost á því að fara í fóstureyðingu því nýsamþykkt fóstureyðingarlög í landinu banni fóstureyðingar með öllu. Nýju taka einnig fyrir eyðingu fósturs af læknisfræðilegum ástæðum, „eins og lögin heimiluðu þó áður," segir Gerður. Stúlkan er frá El Tortuguero, afskekktu þorpi á Atlantshafsströndinni. Málið komst í landsfréttirnar þegar móðir hennar kærði misnotkunina til yfirvalda í Bluefields. Áður hafði hún tilkynnt atburðinn til lögreglunnar í heimabæ sínum í maí en þar fékk málið ekki hljómgrunn að því er segir í tilkynningu frá Þróunarsamvinnustofnun. Stúlkan er nú gengin fimm mánuði á leið og ferðaðist með móður sinni þriggja daga leið til Bluefields. Yfirvöld þar sendu mæðgurnar á sjúkrahús bæjarins þar sem stúlkan gekkst undir mæðraskoðun. Læknar segja líkama stúlkunnar langt því frá tilbúinn undir meðgöngu og því verði meðgangan erfið og geti verið skaðleg heilsu hennar, jafnvel lífshættuleg. Sjúkrahúsið hefur ekki aðstöðu til að hýsa stúlkuna og því var hún send í mæðrahúsið í bænum. Þar mun stúlkan dvelja fram að fæðingu. Móðir stúlkunnar segist þurfa að snúa fljótlega aftur til síns heima þar sem bíði hennar fleiri lítil börn til að hugsa um. Litla stúlkan verður því skilin eftir og yfirvöld munu reyna að finna einhvern til að sinna henni í fjarveru móðurinnar. „Eins sorglegt og málið er þykir okkur samt ánægjulegt að sjá árangur þróunarsamstarfs okkar beint í verki því ef ekki væri fyrir mæðrahúsið í Bluefields fengi hún enga þjónustu og ætti ekki í önnur hús að venda," segir Gerður.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira