Lífið

Sienna Miller vill festa ráð sitt og eignast börn

MYND/Getty

Sienna Miller hefur ekki setið aðgerðarlaus síðan hún losaði sig við kvennabósann Jude Law og átt ófá stefnumót við hina ýmsu menn. Hún er þó komin með nóg af skyndikynnum og vill fara að festa ráð sitt. Síðasti opinberi kærastinn var fyrirsætan Jamie Burke en hann bjó í New York á meðan Miller bjó í London. Hún segist ekki hafa hug á slíku fjarbúðarsambandi aftur.

"Ég er komin á þann stað í lífinu að mig langar í alvöru rómantík og fjölskyldulíf," segir leikkonan í samtali við American Vogue. "Ég er ekki í stuði fyrir skyndikynni þó að það sé sumar og ég ætti að vera það. Ég horfi til systur minnar í þessum efnum en hún er í frábæru hjónabandi og á yndislegan mann. Ég er þó sveimhugi og það kemur mér stundum í vandræði."

Í viðtalinu tjáir hún sig einnig um sambandið við Jude Law. "Ég var 21 árs þegar við byrjuðum saman. Þetta var ást og ég mun elska hann að eilífu. Ég vil þó fjarlægjast þessa reynslu. Ég hef vanrækt móðureðli mitt og nú vil ég hafa hægt um mig og eignast börn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×