Lögreglustjóri Lundúna hreinsaður af ásökunum 2. ágúst 2007 11:49 MYND/GETTY
Lögreglustjóri Lundúna, Ian Blair, hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa logið að almenningi í tengslum við dauða Brasilíumannsins Jean Charles de Menezes. De Menezes var skotinn til bana af lögreglumönnum sem grunuðu hann um hryðjuverk. Lögregla borgarinnar hefur verið ásökuð um að villa um fyrir almenningi eftir að í ljós kom að maðurinn tengdist ekki hryðjuverkum á nokkurn hátt.Hálfum mánuði áður höfðu íslamistar sprengt sprengjur í Lundúnum sem urðu 52 að bana daginn áður höfðu svipaðar árásir mistekist. Í skýrslu sem kom út í dag kemur fram að undirmenn lögreglustjórans hafi ekki skýrt honum frá málavöxtum á fullnægjandi hátt. Skýrslan kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að aðstoðarlögreglustjórinn Andy Hayman hafi villt um fyrir almenningi.„Ásakanir í garð lögreglustjórans eiga ekki við rök að styðjast og það er ekkert sem bendir til þess að hann hafi gerst brotlegur í starfi," segir í skýrslunni. De Menezes var skotinn sjö skotum í höfuðið í þann mund sem hann var að stíga um borð í neðanjarðarlest í Lundúnum en lögreglumennirnir héldu að hann væri Hussein Osman, einn þeirra fjögurra sem nýverið voru dæmdir fyrir að skipuleggja misheppnuðu árásirnar daginn áður.Í skýrslunni er greint frá því að aðstoðarlögreglustjórinn Hayman, hafi skýrt blaðamönnum frá því strax síðdegis daginn sem de Menezes var skotinn, að hann væri ekki einn þeirra sem grunaðir væru í málinu. Seinna um kvöldið gaf hann hins vegar leyfi fyrir því að tilkynning var send út til fjölmiðla þar sem sagt var að enn væri ekki vitað hvort de Menezes tengdist hryðjuverkamönnunum. Blair hefur sagt að hann hafi ekki fengið upplýsingar um að lögregla hafi skotið rangan mann fyrr en sólarhringur hafði liðið frá atvikinu.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira