Mat ráđherra verđur virt

Fréttablađiđ Fastir pennar 18. nóvember 2006 06:00
Mat ráđherra verđur virt

Allmiklar umræður hafa spunnist í fjölmiðlum vegna greinar sem Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóraembættisins, skrifaði í nafni stöðu sinnar í Morgunblaðið liðinn miðvikudag.

Að hluta til hefur sú umræða þó sneitt framhjá merg málsins. Í Morgunblaðsgreininni segir aðstoðaryfirlögregluþjónninn: „Við búum við þróaðar réttarreglur sem eiga að vera nægilega traustar til þess að tryggja að allir fái sömu réttlátu málsmeðferðina, hvort sem um er að ræða auðmann, fjölmiðlakóng, einstætt foreldri eða öryrkja. Hvort sem í hlut á Jón eða séra Jón. Baugsmálið er dæmi um að svo er ekki. Þessi þróun er óþolandi og ég kalla á viðbrögð yfirvalda þessa lands."

Einn æðsti maður ríkislögreglunnar hefur hér komist að þeirri niðurstöðu að hornsteinn réttarríkisins, jafnræðisreglan, sé óvirk í sakamálum. Brotalömin er annaðhvort hjá lögreglu og ákæruvaldi eða dómstólum.

Vafalaust yrði það talinn útúrsnúningur að halda því fram að aðstoðaryfirlögregluþjónninn hafi verið að beina spjótum að lögreglunni og ákæruvaldinu.

Eftir stendur þá að hann telur dómstólana hafa brugðist á svo afdrifaríkan hátt. Jafn þung ásökun frá jafn háttsettum embættismanni um að dómstólarnir hafi brugðist í varðstöðu um sjálfan grundvöll réttarríkisins er einstök.

Á þessum vettvangi verður hins vegar ekki á neinn hátt tekin afstaða til þess hvort aðstoðaryfirlögregluþjónninn hefur á réttu að standa. Hitt er ljóst að ekki verður við það unað að sú staða sé uppi í dómskerfinu sem aðstoðaryfirlögregluþjónninn lýsir.

Hafi hann rétt fyrir sér þarf án tafar að gera reka að því að þeir dómarar sem hlut hafa átt að dómum og úrskurðum í Baugsmálinu verði leystir frá störfum. Jafnframt verða dómsmálaráðherra og Alþingi að endurreisa dómstólana með nýrri löggjöf svo fljótt sem verða má.

Aðstoðaryfirlögregluþjónninn kallar í grein sinni á viðbrögð yfirvalda. Þau eru dómsmálaráðherrann í þessu tilviki. Óvanalegt er að embættismaður stilli ráðherra upp við vegg með þessum hætti. Jafnvel má segja að það sé óviðeigandi gagnvart ráðherranum.

En það er orðinn hlutur sem ekki verður horft framhjá. Ráðherrann á tveggja kosta völ: Að sýna með beinum eða óbeinum hætti að hann hafi traust á dómstólunum eða taka opinberlega undir fullyrðingu aðstoðaryfirlögregluþjónsins og bregðast þá við með þeim ráðstöfunum sem duga til þess að tryggja að jafnræðisreglan verði virk á ný.

Hafi ráðherrann traust á dómstólunum getur hann að sjálfsögðu sýnt það með yfirlýsingu þar að lútandi. En þögn hans um málið er einnig jafnskýr og afgerandi yfirlýsing þar um. Líta verður svo á að þögn ráðherrans dugi í þessu tilviki sem klár yfirlýsing um traust á dómstólunum fyrir þá sök að honum bæri skylda til að grípa umsvifalaust til mjög róttækra aðgerða ef hann væri sammála aðstoðaryfirlögregluþjóninum.

Engin ástæða er til annars en að hafa fulla trú á að mat dómsmálaráðherra muni byggjast á traustum málefnalegum sjónarmiðum. Á hvern veg sem það fer er því fyrirfram unnt að lýsa yfir að það verður virt. En óvissa um traust réttvísinnar á dómstólunum er óhugsandi í réttarríki.


Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök ţarf ađ sanna

Paul Larsson, prófessor viđ Lögregluháskólann í Ósló, ráđlagđi Íslendingum í samtali viđ F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu ţarf ađ undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Ţeir starfa samkvćmt námskrá ţannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigđisţjónustu

Ţađ hefur líklega ekki fariđ fram hjá neinum hérlendis ađ ţjónusta heilbrigđisstarfsfólks,...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Mat ráđherra verđur virt