Lífið

Aron Hannes mætti í mjög svo óhefðbundnar æfingabúðir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Hannes er mjög vinsæll um þessar mundir.
Aron Hannes er mjög vinsæll um þessar mundir.
Snapchat-stjörnurnar Ingó og Tinna sem kalla sig tinnabk og goisportrond í snjalltækjaforritinu buðu Aroni Hannesi í sérstakar æfingabúðir fyrir Söngvakeppnina sem fram fer í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið.

„Aron Hannes var fyrsti nemandi okkar Góa til þess að þreyta Complete Vocal Performance Program en það er námskeið sérhannað fyrir listamenn sem vilja ná lengra,“ segir Tinna í stöðufærslu á Facebook en Aron stígur fyrstur á við og tekur lagið Tonight.

Hér að neðan má sjá virkilega sérstakt myndband frá æfingabúðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×