Lífið

Aron Can fékk sér tattú í Búlgaríu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Aron Can naut lífsins í Búlgaríu um helgina.
Aron Can naut lífsins í Búlgaríu um helgina. Vísir/Tripical
Rapparinn Aron Can skellti sér með útskriftanemum Menntaskólans við Sund til Búlgaríu um helgina. Þar kom hann fram á skemmtistaðnum á Sunny Beach eða Slanchev Bryag eins og innfæddir kalla staðinn. Um er að ræða strandlengju sem er í um 35 kílómetra fjarlægð frá borginni Burgas.

Aron Can kom fram á lokuðum skemmtistað sem var aðeins fyrir útskriftarárgang MS á föstudaginn síðasta. Með honum var plötusnúðurinn Arnar Leó en þeir héldu fjörinu uppi í um tvö tíma.

Aron gerði sér lítið fyrir og fékk sér sitt fyrsta húðflúr í ferðinni. Það var aftan á vinstri kálfann en fótinn merkti hann með ártalinu 2016 enda eflaust að upplifa eitt besta ár lífsins til þessa.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem tekið var í ferðinni en það var ferðaskrifstofan Tripical sem hélt utan um ferðalagið fyrir útskriftarhópinn og gerði myndbandið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×