Íslenski boltinn

Aron Bjarnason: Verið svolítið einmana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Mér finnst við vera með spennandi lið. Við höfum getu til að spila skemmtilegan fótbolta og ég held við munum líta betur út eftir hraðmótið,“ segir Aron Bjarnason, einn af nýliðunum í Eyjaliðinu.

Fréttablaðið og Vísir spáir ÍBV falli úr deildinni í sumar. Það hefur misst marga góða menn og gengið á undirbúningstímabilinu ekki verið gott. Þar hefur gengið illa að skora.

„Mér finnst þetta ekki áhyggjuefni. Á þeim fáu æfingum sem ég hef verið á sé ég gæði í liðinu fram á við,“ segir Aron, en hvað með erlendu leikmennina. Hvernig eru þeir?

„Varnarmennirnir frá Noregi finnst mér vera mjög góðir leikmenn. Þeir eru sterkir og góðir í loftinu. Þeir munu nýtast okkur mjög vel. Hollendinginn hef ég ekki séð þar sem ég æfi ekki með liðinu.“

Einn í Reykjavík

Aron er að klára framhaldsskólanám í Reykjavík og er þess vegna ekki enn fluttur til Eyja. Hann hefur þurft að æfa og halda sér í standi nánast einn í allan vetur.

„Ég hef verið einn síðan í janúar. Það er ekkert sérstakt sko. Ég hef verið svolítið einmana en fengið að kíkja stundum á æfingar hjá uppeldisfélagi mínu Þrótti. Það hefur verið að bjarga mér,“ segir Aron.

„Ég fer í ræktina og svo hafa landsbyggðarliðin verið að æfa saman auk þess sem ÍBV á einhverja tíma í sporthúsinu. Ég get ekki beðið eftir því að komast til Eyja og æfa við almennilegar aðstæður.“

Gefum skít í spána

Aron hefur vægast sagt engar áhyggjur af einhverjum spám. Hann telur Eyjaliðið of gott til að falla í ár.

„Mér er alveg nákvæmlega sama hvar okkur er spáð. Við teljum okkur vera betri en þetta þannig við gefum skít í þetta. Það er bara þannig,“ segir Aron ákveðinn.

Jóhannes Harðarson, Skagamaður, tók við liði ÍBV í vetur. Aron þekkir hann betur en flestir því Jóhannes er frændi hans.

„Þó ég sé nú ekki svo gamall hef ég spilað fyrir ansi marga þjálfara í meistaraflokki. Ég sé ekki mikinn mun á því að spila fyrir frænda sinn eða aðra,“ segir Aron, en hvernig þjálfari er Jóhannes?

„Hann vill spila boltanum með jörðinni og spila sóknarbolta sem á að skila árangri. Hann er ekkert rosalega harður en þegar þá á við getur hann orðið reiður.“

Sjálfur hefur Aron bullandi trú á sjálfum sér og hann ætlar að láta taka eftir sér í Pepsi-deildinni í sumar.

„Ég vil spila sem mest og ég tel að ef ég fæ að spila get ég gert góða hluti; bæði lagt upp mörk og skorað. Ég get gert helling fyrir liðið,“ segir Aron Bjarnason.

Viðtal: Tómas Þór Þórðarson

Upptaka og klipping: Garðar Örn Arnarson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×