Innlent

Árni segir rétt að hafa ekki vikið sæti

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Árni Sigfússon, stjórnarformaður ráðgjafanefndar Orkusjóðs.
Árni Sigfússon, stjórnarformaður ráðgjafanefndar Orkusjóðs. vísir/gva
„Ég vék ekki sæti en tel mig hafa unnið þetta hárrétt,“ segir Árni Sigfússon, stjórnarformaður ráðgjafanefndar Orkusjóðs. Nýlega veitti Orkusjóður Nýsköpunarmiðstöð Íslands styrk sem nam tæplega fimm milljónum króna.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að stjórnsýslukæra hefði borist atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu vegna tengsla Árna og Þorsteins Inga Sigfússonar, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem styrkinn fékk. Þeir séu bræður.

„Ef vinur eða venslamaður sækir um styrk skal nefndarmaður að sjálfsögðu víkja. En það var ekki í þessu tilviki. Þetta er sambærilegt við að rektor Háskóla Íslands væri þannig beintengdur við allar umsóknir deilda háskólans og þeir sem venslaðir væru honum, mættu ekki fjalla um neinar slíkar umsóknir á vegum skólans, þótt hann kæmi hvergi persónulega að þeim,“ segir Árni og bætir við að umsóknir Nýsköpunarmiðstöðvarinnar hafi hlotið hæstu einkunn utanaðkomandi sérfræðinga sem fengnir voru til að meta þær.

Valdimar Össurarson, framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Valorku og einn umsækjenda í Orkusjóð, kærði málið til ráðuneytisins. Að sögn hans er ámælisvert að stofnunin geti yfirhöfuð sótt um styrki úr samkeppnissjóðum en henni sé að lögum ætlað að vera frumkvöðlum til ráðgjafar og meðal annars veita þeim aðstoð við styrkumsóknir í samkeppnissjóði. Stofnunin keppi þannig um styrki við skjólstæðinga sína.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu vegna málsins segir að það sé yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar að efla samkeppnissjóði. Rétt eins og fyrirtæki og einstaklingar, sæki hinar ýmsu rannsókna- og þróunarstofnanir ríkisins um styrki í sjóðina.

Orkusjóður sé samkeppnissjóður og samkvæmt lögum séu engin takmörk á því hverjir megi sækja í sjóðinn, önnur en þau að Orkustofnun sé það óheimilt þar sem hún annist rekstur sjóðsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×