Innlent

Arna nýr formaður UN Women á Íslandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ný stjórn landsnefndar UN Women á Íslandi.
Ný stjórn landsnefndar UN Women á Íslandi. Vísir
Arna Grímsdóttur, framkvæmdastjóri lögfræðissviðs Reita hf. var kosin formaður UN Women á Íslandi á aðalfundi félagsins í dag. Hún tekur við formennsku af Guðrúnu Ögmundsdóttur, sem gegnt hefur formennsku undanfarin fjögur ár.

Tvær nýjar stjórnarkonur voru kjörnar í stjórn samtakanna: Þórey Vilhjálmsdóttir og Kristín Ögmundsdóttir.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri lét af sæti eftir sex ára stjórnarsetu auk Kristjönu Sigurbjörnsdóttur, verkefnisstjóra sem setið hefur undanfarin fjögur ár í stjórn samtakanna.

Í stjórn sitja sem fyrr Magnús Orri Schram, ráðgjafi, Karen Áslaug Vignisdóttir, hagfræðingur, Elín Hrefna Ólafsdóttir, lögfræðingur, Örn Úlfar Sævarsson, texta-og hugmyndasmiður, Soffía Sigurgeirsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og Fanney Karlsdóttir, forstöðumaður.

Í tilkynningu frá UN WOmen á Íslandi segir að starfsemi landsnefndarinnar hafi vaxið ört á undanförnum árum og að síðasta ár hafi ekki verið undantekning. jukust framlög landsnefndarinnar um 41 prósent á milli áranna 2015 og 2016.

Um helmingur af heildarframlagi landsnefndarinnar rann til verkefna sem miða að því bæta lífsgæði og öryggi kvenna á flótta. Þá hafa aldrei fleiri styrkt samtökin með mánaðarlegu framlagi og aldrei áður hafa jafn margir karlmenn tilheyrt þeim hópi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×