Innlent

Arion og Íslandsbanki voru í 100 prósent eigu ríkisins

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Aðstoðarmaður forsætisráðherra hefur svarað fyrir hann.
Aðstoðarmaður forsætisráðherra hefur svarað fyrir hann. VÍSIR/DANÍEL
Arion banki og Íslandsbanki voru báðir skráðir sem 100 prósent eign ríkissjóðs í árslok 2008. Þetta kemur fram í svari aðstoðarmanns forsætisráðherra sem hann sendi frá sér vegna spurningar Katrínar Júlíusdóttur, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem hún varpaði fram á alþingi í gær.

Í ræðu bað hún Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og framsóknarmenn að segja frá því hvenær Arion banki og Íslandsbanki hafi verið í eigu íslenska ríkisins. Upplýsingar um það segir Jóhannes Þór Skúlason aðstoðarmaður að komi fram í ríkisreikningi 2008.

Sjá einnig: Þingmenn takast á um hvort ríkið hafi átt Arion og Íslandsbanka

Katrín bað um að forsætisráðherra og framsóknarmenn upplýstu hvenær ríkið hefði átt Arion banka og Íslandsbanka.Vísir/GVA
Jóhannes segir í svarinu að eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka og í Nýja Kaupþingi sé skráð 100 prósent í ríkisreikningi við lok árs 2008. Þá segir hann að eignarhaldið sé horfið úr ríkisreikningi ári síðar. 

Sé ríkisreikningur ársins 2008, sem birtur er á vef Fjársýslu ríkisins, skoðaður sést glögglega að Íslandsbanki og Nýi Kaupþing banki eru báðir skráðir sem eign ríkisins. Í töflu yfir eignir í sameignarfélögum og hlutafélögum kemur fram að eignarhlutur ríkisins í bönkunum tveimur sé 100 prósent. Í ríkisreikningi 2009 eru bankarnir ekki taldir upp með eignum ríkisins.

Jóhannes vitnar einnig í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um fyrirgreiðslu ríkisins við fjármálafyrirtæki og stofnanir í kjölfar bankahrunsins. Þar segir að ríkið hafi stofnað og veitt fé til þriggja nýrra viðskiptabanka sem tóku yfir innlenda starfsemi Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf. og að ríkissjóður hafi í upphafi lagt hverjum nýju bankanna til 775 milljónir króna, sem sé lágmark eigin fjár við stofnun nýs banka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×